EININGAVERKSMIÐjA

Framleiðum forsteyptar einingar til byggingaframkvæmda.

EININGA VERKSMIÐJA

Framleiðum forsteyptar einingar til byggingaframkvæmda.

Gæðastefna

  • Fyrirtækið ræðst aðeins í verkefni sem hæfa færni, þekkingu og hæfni starfsmanna og innviðum fyrirtækisins á hverjum tíma.
  • Fyrirtækið leggur áherslu á að rýna þarfir og væntingar viðskiptavinarins í upphafi verks, góð og upplýsandi samskipti meðan á framleiðslu stendur og ánægju hans að verki loknu. 
    Það er ekkert í aðgerðum né athöfnum fyrirtækisins sem kemur viðskiptavininum á óvart. 
  • Starfsmenn fyrirtækisins hljóta þjálfun og búa yfir hæfni til þeirra verkefna sem fyrirtækið tekur að sér. Stjórnendur þekkja og efla hæfni starfsmanna og úthluta þeim verkefnum við hæfi á hverjum tíma. Starfsmenn starfa við öruggar og umhverfisvænar aðstæður og njóta kjara eins og best gerist í sambærilegu rekstrarumhverfi.
  • Fyrirtækið leitar uppi hættur og gerir áhættumat fyrir starfsemi fyrirtækisins í heild og fyrir einstök verkefni vegna umhverfis- og öryggismála með hliðsjón af stöðlunum ISO 14001:2004 og ISO 45001.
  • Sérsteypan ehf er vottuð samkvæmt staðlinum ISO 9001:2015 sem stjórnendur nota til daglegrar leiðsagnar við rekstur og framleiðslu. 
  • Stjórnendur þekkja lög og reglur er varðar rekstur og rekstrarumhverfi fyrirtækisins og leitast við að rýna sérhvert verkefni og upplýsa og leiðbeina starfsmönnum til löglegra athafna.